Opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni 🎥
Nám í kvikmyndatækni býr nemendur undir fjölbreytt störf í heimi kvikmyndagerðar. Störfin sem um ræðir eru fjölmörg en í náminu verður einblínt á að kenna þau fög sem tengjast tækninni sjálfri, bæði við undirbúning, framkvæmd og eftirvinnslu kvikmyndaverks auk annarra tengdra greina.
Núna er opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni fyrir haustið 2024 til vors 2026.
Kvikmyndatækni er nám fyrir fólk sem vill skapa kvikmyndir allt frá hugmynd að veruleika. Námið er metnaðarfullt þar sem áhersla er fyrst og fremst lögð á tæknistörf við kvikmyndagerð, undirbúning, tökurog eftirvinnslu.
Nánari upplýsingar og skráning hér!