Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Október 2014: Um höfundarrétt á rafrænum miðlum

Október 2014: Um höfundarrétt á rafrænum miðlum


Kvöldfyrirlestur Miðvikudaginn 12.október 2014

Um höfundarrétt á rafrænum miðlum

Tveir fyrirlesarar munu halda fyrirlestra um „Höfundarrétt á rafrænum miðlum“.

1. Stafræn dreifing á efni – hvað má og hvað má ekki?

Guðrún Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri STEFs mun í erindi sínu reyna að svara eftirfarandi spurningum:

  • Er hægt að stefna einstaklingi fyrir brot á lögum þegar hann dreifir efni í gegnum torrentsíðu?

  • Hvað ef viðkomandi einstaklingur hleður eingöngu niður efni en ekki upp efni, er það í lagi?

  • Er Netflix löglegt á Íslandi?

  • Er lokun á aðgengi að ólöglegum vefsíðum brot á tjáningarfrelsi?

  • Er þetta ekki bara spurning um að auka löglegt framboð?

  • Er Pirate Bay ekki bara góður kynningarvettvangur fyrir tónlistarmenn sem eykur sölu á verkum þeirra?

  • Hvenær á að greiða fyrir opinberan flutning tónlistar?

  • Ef kveikt er á útvarpinu í verslun og greitt útvarpsgjald er þá ekki um leið búið að greiða fyrir opinberan flutning tónlistarinnar?

  • Hvað ef verslunin er í rými þar sem heyrist tónlist frá sameign?

2. Sjónvarpsdreifing á hótelum – opnar og lokaðar sjónvarpsrásir?

Hólmgeir Baldursson framkvæmdastjóri Filmflex heldur fyrirlestur um höfundarétt á sjónvarpsefni til hótela, en fyrirtækið Filmflex býður úrval af slíku sjónvarpsefni til hótelrekenda. Hólmgeir mun í erindi sínu reyna að svara eftirfarandi spurningum:

  • Undir hvað falla viðskiptaréttindi okkar.

  • Freeview – Freesat- Er þetta í lagi?

  • Áskriftir símafélaganna til hótela og gistiheimila

  • Hvað felst í einkaréttindum Filmflex.

  • Hvað er að gerast?

  • Hverju svara hótelin?

  • Hvað segja rafiðnaðarmenn?

  • Hvert stefnir?

  • VOD og önnur nýmiðlun

Fundartími: Miðvikudagur 12.nóvember kl. 20.00 - 22:00

Fundarstaður: Rafiðnaðarskólinn – Stórhöfða 27 – 1.hæð