Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Nokkrar nýjungar á Rafbók.is

Nú er hægt að vista og deila tenglum á möppur og leitarniðurstöður í safninu og PDF-hefti opnast beint inni á Rafbók.is

Nokkrar nýjungar á Rafbók.is

Möppur og leit fá eigin slóð

Hingað til var ekki hægt að afrita tengil beint inn á ákveðna möppu. Nú fær hver mappa eigin slóð, til dæmis rafbok.is/folder/0B6c…MEk, sem má setja í bókamerki eða til að deila.

⌂ Skrár› Tölvur og nettækni›Tölvur og nettækni PDF

Leit í þeirri möppunni sem þú ert í

Leitin virkar ekki aðeins til að leita í öllu safninu, heldur getur þú núna leitað í þeirri möppu sem þú ert í og birtast þá allar skrár og undirmöppur hennar. Á forsíðu leitar hún eins og áður í öllu safninu.

⌂ Skrár› Tölvur og nettækni› 🔍 Leit 🔍Leita í „Tölvur og nettækni“...

Leitarorðið fer í slóðina (?q=tnt) svo leit má vista og deila alveg eins og möppu.

Undir hverri niðurstöðu stendur í hvaða möppu skjalið er; í Tölvur og nettækni PDF .

PDF-hefti opnast inni á Rafbók

Nú höfum við bætt við innbyggðum lesara og opnast því skjölin inni á rafbok.is/ í stað inni á Google Drive.

Aftur á réttan stað eftir innskráningu

Ef þú opnar tengil á möppu eða hefti án þess að vera skráð(ur) inn, ferðu á innskráningu og svo beint þangað sem þú ætlaðir. Áður endaði maður alltaf á forsíðu.