Námskeið í samstarfi við Endurmenntun Hí
RAFMENNT og Endurmenntun Hí bjóða upp á 3 námskeið fyrir félagsmenn
RAFMENNT og Endurmenntun Hí bjóða upp á 3 námskeið fyrir félagsmenn
Lestur ársreikninga - Fjarkennsla
19. - 20. nóvember
Ársreikningar félaga koma mikið við sögu í efnahagslífinu og efni þeirra snertir líf margra beint og flestra annarra óbeint.
Hvaða boðskap flytja ársreikningar okkur? Gefa þeir trúverðuga mynd af starfsemi viðkomandi félaga?
Fjármál við starfslok - Fjarkennsla
21. nóvember
Fróðlegt og gagnlegt námskeið um það sem mikilvægast er að hafa á hreinu þegar starfsævi lýkur.
Vandlega verður farið yfir þær breytingar sem vefjast fyrir mörgum, svo sem varðandi Tryggingastofnun,
lífeyrismál, skatta og sparnað.
Verkefnastjórnun - fjarkennsla
2. desember
Ertu í sjálfstæðum rekstri og með marga bolta á lofti?
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig nýta má aðferðir verkefnastjórnunar við að skipuleggja starfsemina
svo hægt sé að hámarka árangur og virði. Unnið verður að persónulegum verkefnum á meðan námskeiðinu stendur.