Náðu betri tökum á Unifi-WIFI!
Náðu betri tökum á þráðlausum netkerfum með Unifi-WIFI námskeiðinu 13. -15. maí!
Náðu betri tökum á þráðlausum netkerfum með Unifi-WIFI námskeiðinu 13. -15. maí!
Þráðlaus netkerfi gegna sífellt stærra hlutverki í daglegum rekstri fyrirtækja og heimila. Kröfur um hraða, stöðugleika og öryggi aukast stöðugt og þar skiptir rétt hönnun og uppsetning sköpum.
Rafmennt býður nú upp á hagnýtt námskeið í Unifi-WIFI þar sem þátttakendur fá innsýn í hvernig byggja má upp og reka nútímaleg þráðlaus netkerfi með faglegum hætti.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á:
þekkja þráðlaus samskipti, sneiða fram hjá truflunum og tryggja dreifingu
hvernig á að skipuleggja og setja upp netkerfi sem virkar í raunverulegum aðstæðum
hvernig hægt er að fylgjast með, stýra og hámarka afköst kerfa
hvernig nýta má skýjalausnir og stjórnunartól til að einfalda rekstur
Þessi þekking nýtist beint í starfi – hvort sem unnið er við uppsetningar, þjónustu eða rekstur netkerfa.
Námskeiðið hentar sérstaklega rafiðnaðar-og tæknifólki sem vill efla færni sína á sviði netkerfa og auka virði sitt á vinnumarkaði.