Menntastefna rafiðnaðarins var haldin 29. október
Menntastefna rafiðnaðarins var haldin laugardaginn 29. október
Menntastefna rafiðnaðarins var haldin laugardaginn 29. október, umfjöllunarefni ráðstefnunar var skipulag náms í rafiðngreinum.
Fundargestir voru einstaklingar af vinnumarkaðinum, úr skólakerfinu og aðrir sem koma að rafiðnaði.
Farið var yfir núverandi fyrirkomulag náms í rafiðngreinum, kosti þess og galla.
Lagðar voru fram tillögur sem m.a. höfðu verið ræddar í starfsgreinaráði að breytingum á fyrirkomulagi náms.
Dagskrá og erindi voru fjölbreytt
Sigursteinn Sigurðsson kennari í FB og formaður Félags kennara í rafiðngreinum
Elsa Eiríksdóttir Dósent við Menntavísindasvið HÍ
Óskar Ingi Sigurðsson kennari við VMA og formaður starfsgreinaráðs og Haukur Eiríksson kennari og brautarstjóri rafiðngreina við VMA
Að loknum erindum var fundargestum gefið tækifæri til að ræða saman í hópavinnu og láta skoðanir sínar í ljós.
Áframhaldandi vinna verður unnin úr niðurstöðum og umræðum sem komu fram á ráðstefnunni.
Við þökkum þeim sem sáu sér fært að mæta og tóku þátt í þessum skemmtilega og fræðandi degi