Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

MÆLITÆKNI í næstu viku.

Námskeiðið Mælitækni er á dagskrá í næstu viku og enn eru laus sæti.

MÆLITÆKNI í næstu viku.

Farið er í uppbygging og notkunarmöguleika fjölsviðsmæla, sveiflusjáa (hlið- og stafrænna) og annarra mælitækja í rafeindatækni. Áhrif mismunandi mælikanna (probes) á mælingarniðurstöður. Upprifjun á grunnmælingum íhluta, eins og díóða, transistora og farið í aðferðir til að mæla rýmd og span. Notkun kassabylgjumerkja við mælingar á mögnurum, fæðilínum og köplum (t.d. standbylgjur og lengdir). Þetta námskeið er æskilegt sem grunnur fyrir önnur námskeið þar sem mælitæki eru notuð.

Fyrir hverja:
Þá sem vilja rifja upp og/eða auka við þekkingu sína á mælitækni.

Undirstaða:
Rafiðnaðarnám eða sambærileg þekking.

Lengd: 3 dagar