Laust starf Verkefnastjóra á sviði smáspennu
Við hjá RAFMENNT leitum að lausnarmiðuðum verkefnastjóra til starfa við endur- og símenntun á sviði smáspennu.
Við hjá RAFMENNT leitum að lausnarmiðuðum verkefnastjóra til starfa við endur- og símenntun á sviði smáspennu
Helstu verkefni
Starfsmaður skipuleggur endur- og símenntun á svið smáspennu
Fylgist með nýjungum á sviði smáspennu
Fylgist með nýjungum á rafrænum samskiptum
Þróun námskeiða
Greinir þörf fyrir endur- og símenntun
Hæfniskröfur
Reynsla af störfum á sviði smáspennu
Skipulagshæfni og frumkvæði í starfi
Góð samskiptahæfni
Reynsla að verkefnastjórnun og teymisvinnu
Þekking á endur- og símenntun kostur
Gott vald á íslensku og ensku
Menntunarkröfur
Krafa er um formlega menntun á rafiðnaðarsviði
Kennsluréttindi kostur
RAFMENNT hefur það hlutverk að bjóða fræðslu og styðja fræðslutengd verkefni með það að markmiði að uppfylla fræðsluþörf á sviði rafiðnaðar og svara þannig þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma.
Við erum 10 manns sem störfum hjá RAFMENNT við fjölbreytt störf sem snúa að menntun og endurmenntun félagsmanna.
Umsóknir skulu sendar til framkvæmdastjóra sem veitir nánari upplýsingar um starfi á netfangið thor@rafmennt.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.