Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Kvöldfyrirlestur: Þróun farsímatækninnar

Farsímatæknin skoðuð allt frá fyrstu kynslóð farsíma og svo er þróunin rakin fram á okkar dag og næstu mögulegu skref skoðuð

Kvöldfyrirlestur: Þróun farsímatækninnar

Fyrsta kynslóð farsíma kom fram fyrir nærri 40 árum. NMT kerfið var 1. kynslóðar kerfi sem byggðist á hliðrænni tækni. Önnur kynslóðin byggðist á stafrænni tækni og hefur þróun farsímans síðan hún kom á sjónarsviðið verið með ólíkindum. Farið verður yfir helstu þætti stafrænnar farsímatækni, uppskiptingu þjónustusvæða í sellur, mótunar- og kóðunartækni. Kynntar verða nýjungar í loftnetatækni sem nefndar eru MIMO (Multiple Input Multiple Output). Eiginleikar kynslóðanna verða raktir og að lokum verða vangaveltur um fimmtu kynslóðina sem kemur á sjónarsviðið á þriðja áratugnum.

Fyrirlesari: Sæmundur Þorsteinsson verkfræðingur frá Háskóla Íslands.

Fundartími: Miðvikudagur 25.janúar 2017 kl.20:00 - 22:00.

Fundarstaður: Rafiðnaðarskólinn – Stórhöfða 27 – 1.hæð