Fara beint í efni

Kvikmyndaskólinn í nýju húsnæði og námið staðfest á efsta þrepi framhaldsskólastigs

Tvenn stór tímamót urðu hjá Kvikmyndaskólanum í september. Mennta- og barnamálaráðuneytið staðfesti að námskrá skólans uppfyllir skilyrði laga um framhaldsskóla og aðalnámskrár, og ný 1.300 fermetra aðstaða skólans að Vatnagörðum 4 var formlega vígð miðvikudaginn 23. september.

Staðfesting ráðuneytisins barst 9. september og með henni er kvikmyndanám við skólann viðurkennt á efsta þrepi framhaldsskólastigs. Námið er 120 eininga bókleg og verkleg listnámsbraut þar sem nemendur velja strax í upphafi eitt af þremur kjörsviðum: kvikmyndagerð, kvikmyndatækni eða leiklist fyrir framan myndavél.

Nýja aðstaðan er í húsi Stúdíós Sýrlands og hönnuð frá grunni fyrir kvikmyndanám, byggð á áratuga reynslu Sýrlands af framleiðslu. Þar eru þrjú kennslustúdíó, bíósalur, klippisvítur og kennslustofur af ýmsum stærðum. Fjöldi gesta úr kvikmyndaiðnaðinum og frá samstarfsaðilum mætti á vígsluna og skoðaði aðstöðuna.

Tæpt eitt og hálft ár er síðan Rafmennt tók við rekstri skólans. Í dag stunda tæplega 60 nemendur nám við skólann og samningur heimilar allt að 90.

„Þetta eru tímamót fyrir kvikmyndanám á Íslandi. Við höfum nú bæði viðurkennda námsbraut og aðstöðu sem stenst samanburð við það besta. Við erum þakklát ráðuneytinu, Stúdíó Sýrlandi og kvikmyndaiðnaðinum fyrir stuðninginn,“ segir Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar.

Umfjöllun í fjölmiðlum

Fjölmiðlar fjölluðu um tímamótin:

Kynntu þér námið á kvikmyndaskolinn.is

Kvikmyndaskólinn í nýju húsnæði og námið staðfest á efsta þrepi framhaldsskólastigs