Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Hlaðborð spennandi námskeiða!

Við ljúkum vorönninni með stæl og bjóðum fimm spennandi námskeið í maí. Kynntu þér málið nánar og sjáðu hvort eitthvert þeirra henti þér.

Hlaðborð spennandi námskeiða!

Fimmtudaginn, 9. maí nk., hefst námskeiðið raflagnatækni þar sem fjallað verður m.a. um helstu störf rafvirkjameistarans við mannvirkjagerð. Námskeiðið stendur yfir í 3 daga (9.-11. maí kl 8:30-18:00).

Föstudaginn, 10. maí nk., er námskeiðið IP myndavélar á dagskrá, sem er heils dags námskeið (kl. 8:30-17:00)

Miðvikudaginn 15. maí kl 17-21 ætlum við að vera með námskeiðið Rafbílar - íhluti og virkni og föstudaginn 17. maí verður námskeiðið Úttekt eigin verka á dagskrá kl. 13-17.

Föstudaginn, 24. maí nk., (ath var fært frá 10. maí) hefst 2ja daga KNX A námskeið (24.-25. maí kl 8:30-17:00). Námskeiðið veitir innsýn í KNX hússtjórnarkerfi og er fyrri hlutinn af viðurkenndu "Basic" námskeiði sem eru vottuð af KNX samtökunum.

Kynntu þér málið nánar á vefnum okkar og athugaðu hvort eitthvert þessara námskeiða henti þér. Námskeiðin eru öll hluti af meistaraskóla rafvirkja en eru einnig opin sem endurmenntunarnámskeið.