Fara beint í efni

Hádegisfundur um gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi

Rafmennt og Iðan fræðslusetur bjóða til hádegisfundar miðvikudaginn 14. október þar sem spurt verður hvort vottað gæðakerfi sé fyrirhafnarinnar virði fyrir verktaka- og iðnfyrirtæki.

Gott gæðakerfi getur stutt við faglegri rekstur, aukið gæði og ýtt undir stöðugar umbætur. Það kostar þó sitt, því innleiðing og viðhald kalla á þátttöku stjórnenda, tíma starfsfólks og fjárfestingu. Á fundinum verður rætt opinskátt hvort ávinningurinn standi undir kostnaðinum og hvernig fyrirtæki geta tryggt að kerfið nýtist í raun við stjórnun en verði ekki bara skjöl í möppu.

Fundurinn hentar stjórnendum, gæðastjórum og öðrum sem koma að rekstri verktaka- og iðnfyrirtækja.

Fyrirlesarar

Eyjólfur Bjarnason er byggingatæknifræðingur, menntaður í Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.

Sigrún Melax er verkfræðingur og hefur unnið við gæðastjórnun um árabil, meðal annars við uppsetningu, innleiðingu og rekstur gæðakerfa og virkniskoðanir.

Hagnýtar upplýsingar

Hvenær: Miðvikudaginn 14. október kl. 12:00–13:00
Hvar: Rafmennt, Stórhöfða 27, 1. hæð
Verð: Ókeypis og léttar veitingar í boði

Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.

Hádegisfundur um gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi