Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Fræðslu- og kynningarfundur í hádeginu 27. apríl - CRI/ljósaendurgjöf

Fimmtudaginn 27. apríl kl: 12:00 - 12:30 verður haldin fræðslu- og kynningarfundur í húsnæði RAFMENNTAR á Stórhöfða 27 (gengið inn Grafarvogsmeginn) og í beinu streymi á Teams á sama tíma. G. Orri Rósenkranz lýsingarfræði kynnir CRI eða ljósaendurgjöf.

Fræðslu- og kynningarfundur í hádeginu 27. apríl - CRI/ljósaendurgjöf

Fimmtudaginn 27. apríl kl: 12:00 - 12:30 verður haldin fræðslu- og kynningarfundur í húsnæði RAFMENNTAR á Stórhöfða 27 (gengið inn Grafarvogsmeginn) og í beinu streymi á Teams á sama tíma.

G. Orri Rósenkranz kemur með örfyrirlestur og útskýringar á CRI eða litaendurgjöf, hann er Lýsingarfræðingur að mennt og býr yfir 20 ára reynslu í faginu.

Litaendurgjöf er mælieining sem segir okkur til um gæði lita ljósgjafa samanborið við dagsljósið. Í þessum örfyrirlestri ætlum við að stilka á stóru og skoða afhverju þetta skiptir máli, hvað þarf að varast, hvernig þetta er mælt og hver helstu hugtök eru þegar kemur að vali ljósgjafa.

Fræðslu- og kynningarfundur í hádeginu 27. apríl - CRI/ljósaendurgjöf

Hentar öllum þeim sem hafa áhuga að skilja nánar CRI og sérstaklega þeim sem kunna að standa fyrir vali á ljósgjöfum þar sem litagæði skipta máli.