Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

"Einn lás, eitt líf"

Verkefninu "Einn lás, eitt líf” er ætlað að draga úr hættu á slysum og óhöppum af völdum óæskilegrar eða óvæntrar spennusetningar rafbúnaðar.

"Einn lás, eitt líf"

Verkefninu "Einn lás, eitt líf", sem er samvinnuverkefni Samtaka rafverktaka, Rafiðnaðarsambands Íslands og Mannvirkjastofnunar, er ætlað að draga úr hættu á slysum og óhöppum af völdum óæskilegrar eða óvæntrar spennusetningar rafbúnaðar. Öryggislásarnir eru félagsmönnum að kostnaðarlausu og nú þegar hafa 900 lásar verið afhentir en til stendur að afhenda hátt í 1500 lása áður en yfir lýkur.

Ef þú átt eftir að fá sendan öryggislás þá skráir þú þig á "Mínar síður" á vef RSÍ og gefur þar upp nafn og gsm númer. Einfalt, fljótlegt og þægilegt.