AUKA NÁMSKEIÐ / BRUNAÞÉTTINGAR 11. APRÍL
Lýsing:
Rafvirkjameistarar bera ábyrgð á brunaþéttingum með lögnum sem þeir leggja milli brunahólfa í byggingum. Nemendur læra að kunna skil á brunahólfun mannvirkja, hinum ýmsu gerðum brunaþéttinga, eiginleikum þeirra og notkunarsviði. Leiðbeiningar Mannvirkjastofnunar um brunaþéttingar verða kynntar.
Á námskeiðinu er fjallað um hvar og hversvegna brunaþéttingar eru settar og hvaða efni má nota í þær.
Tímalengd: 1/2 dagur