Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Afhending sveinsbréfa í september

Sveinsbréf í rafiðngreinum verða afhent við hátíðlegar athafnir á Hilton Reykjavík Nordica 18. september og í Hofi á Akureyri 25. september.

Afhending sveinsbréfa í september

Rafmennt afhendir sveinsbréf í rafiðngreinum við tvær hátíðlegar athafnir í september, í Reykjavík og á Akureyri.

  • Föstudaginn 18. september kl. 15–17 - Hilton Reykjavík Nordica

  • Föstudaginn 25. september kl. 17–19 - Hof á Akureyri

Nýsveinar að þessu sinni eru 121 talsins og skiptast eftir greinum sem hér segir:

  • 109 rafvirkjar

  • 5 rafveituvirkjar

  • 7 rafeindavirkjar

Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Viðburðurinn er jafnframt tilefni til að fagna árangri nýsveina og þeirri fagmennsku sem þeir færa með sér inn í atvinnulífið.

Dagskráin verður að vanda með ræðuhöldum og afhendingu viðurkenninga fyrir góðan árangur á sveinsprófi.

Rafmennt óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og hlakkar til að fagna með þeim.