Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
EndurmenntunH2026N

Rofastjórar MRAT24ROF

Um námskeiðið

Tilgangurinn með þessu námskeiði er að fræða verðandi rofastjóra og endurmennta núverandi rofastjóra um rekstur og

hegðun raforkukerfa, tengivirkja og þann búnað sem í þeim er.

Farið er yfir gæðakerfi, verklag, ábyrgðir, merkingar á búnaði, tetra, lög og reglugerðir ofl.

Námskeiðið er kaflaskipt með verkefnum og svo lokaprófi á þriðja degi.

Forkröfur fyrir þetta námskeið eru að hafa lokið Kunnáttumannanámskeiði þar sem farið er ýtarlega yfir lög og reglugerðir.

Kennari

  • Kristján Jóhann Guðmundsson

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 2

    Dagsetning
    17.–19. nóvember · Þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfða 27, Teams
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð72.000 kr.
RSÍ endurmenntun25.200 kr.
SART61.200 kr.
Er í meistaraskóla14.400 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband