CompTIA Network+ UPTÆ40NetW-TIA

Um námskeiðið
Traustur grunnur í netkerfum og undirbúningur fyrir alþjóðlegu vottunina CompTIA Network+.
Um námskeiðið
Þetta fjölbreytta og hagnýta námskeið er ætlað öllum sem vilja öðlast traustan grunn í netkerfum og undirbúa sig fyrir alþjóðlega vottun CompTIA Network+. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem vilja öðlast víðtækan skilning á netkerfum, greina og leysa vandamál og vilja starfa við netkerfi eða styrkja færni sína til frekara náms í upplýsingatækni, s.s. CCNA eða netöryggisgreinum.
Markmiðið er að nemendur skilji hvernig tölvusamskipti fara fram yfir net og öðlist djúpan skilning á samskiptum milli netbúnaðar – t.d. leiðarstjóra (routers), skipta (switches) og netþjóna (servers). Þeir sem ljúka námskeiðinu með góðum árangri verða færir um að greina og leysa algeng vandamál í netkerfum og vísa flóknari málum í réttan farveg. Þá eru nemendur einnig hvattir og búnir undir það að afla sér frekari þekkingar á eigin forsendum.
Eftir námskeiðið ættu nemendur að
Hafa þekkingu á mismunandi netbúnaði og hlutverki hvers tækis
Geta skilið og teiknað upp netkerfi á mismunandi lögum (OSI-módel)
Þekkja helstu öryggishættur og hvernig ber að bregðast við þeim
Hafa góðan skilning á virkni algengra netkerfa og geta leyst úr algengum vandamálum
Þekkja og nota helstu nettól og prófunartækni, þar með talin DNS, DHCP, ping, traceroute o.fl.
Geta greint og tengt netbúnað, þar á meðal búa til eða prófa netkapla
Kennsluaðferðir og áherslur
Námið byggir á fyrirlestrum, heimalærdómi og verklegum æfingum í hermum. Áhersla er lögð á öfluga hagnýta þjálfun, öryggismál í netkerfum, og vönduð vinnubrögð sem nýtast í daglegu starfi. Námið nýtir viðurkenndar enskar kennslubækur og námsefni og er kennt af reyndum sérfræðingi úr netgeiranum – þannig eru verkefni og dæmi ávallt í takti við raunveruleikann.
Kennslustundir verða teknar upp, þátttakendum gefst því kostur að rifja upp tíma, horfa á fyrirlestra sem þeir hafa misst af og jafnvel tekið hluta eða allt námið í fjarkennslu.
Meðal námsgagna sem nemendur fá afhent er bókin „CompTIA Network+ Certification Kit: Exam N10-009".
Þetta námskeið hentar einstaklega vel sem grunnur að námskeiði í Cisco Certified Network Associate – CCNA, sem áætlað er að bjóða upp á vorönn 2027.
Aðrar upplýsingar
Forkröfur: Almenn tölvufærni
Lengd námskeiðs: 40 klst.
Dagskrá
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00–21:00
Þriðjudagurinn 27. október 17:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 29. október 17:00 – 21:00 |
Þriðjudagurinn 3. nóvember 17:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 5. nóvember 17:00 – 21:00 |
Þriðjudagurinn 10. nóvember 17:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 12. nóvember 17:00 – 21:00 |
Þriðjudagurinn 17. nóvember 17:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 19. nóvember 17:00 – 21:00 |
Þriðjudagurinn 24. nóvember 17:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 26. nóvember 17:00 – 21:00 |
Kennari
- Abdelaziz Ghazal
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 27. okt. – 26. nóv. · Þriðjudagar og fimmtudagar
- Tími
- kl. 17:00–21:00
- Staður
- Stórhögði 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 165.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 60.000 kr. |
| SART | 135.000 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →