Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Endurmenntun · EndurmenntunV2027N

Certified Optical Network Associate FJSV40CONA

Um námskeiðið

Á þessu námskeiði er farið yfir ljósleiðarakerfi og fjallað um netinnviði, uppbyggingu, hönnun og rekstur slíkra kerfa ásamt samþættingu við önnur netkerfi.

Greiningartækni er kynnt til að ná hámarksafköstum allt að 1.6Tb/s. Farið er yfir Ethernet-rásir innan gagnavera, 100Gb/s og 400Gb/s sambönd, FTTA(Fiber-to-the-antenna) við 5G dreifingu, FTTH (Fiber-to-the-home) í point-to-point og önnur ljósleiðarasambönd yfir mismunandi flutnings- og veitukerfi.

Margfalda afkastagetu eins rása kerfa með notkun SDM - eða WDM tækni. Auka drægni kerfanna með mögnurum (EDFA, Raman, SOA) og stjórnun ljósdreifingar.


Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    11.–15. janúar 2027 · Mánudagur - föstudags
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

RSÍ endurmenntun198.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband