After Effects I EFFE08EFF1
Um námskeiðið
Þetta námskeið er meira fyrir byrjendur, en þar sem námskeiðið er einnig einstaklingsmiðað, þá getur það einnig nýst þeim sem hafa smá reynslu af vinnslu í After Effects. Photoshop er einnig notað til hliðsjónar til að útskýra hugtök og eiginleika After Effects, þar sem þessi tvö forrit eru mjög sambærileg í uppbyggingu. Farið verður yfir viðmót After Effects og þau verkfæri sem er mest notast við. Einnig verður farið yfir helstu hugtök og flýtilykla til að flýta fyrir vinnslu í forritinu, sem verður einnig deilt á nemendur til að hafa til hliðsjónar. Nemendum verður kynnt hvernig hægt er að búa til hreyfingar á texta eða titla af eigin hendi og einnig með flýtileiðum sem eru í boði. Einnig mun nemendum kennt að bæta inn grafík og hljóði með textanum og er öllum frjálst að koma með sitt eigið efni útfrá ákveðinni forskrift sem kynnt verður áður en námskeiðið hefst. Skil á verkefni námskeiðisins verður unnið í þeim stöðlum sem notaðir eru af fagaðilum við skil á efni til sjónvarpsstöðva. Þar verður notast við Adobe Media Encoder og sýnt hvernig það forrit einfaldar ferlið og býður uppá að gera mismunandi útgáfur af myndbandinu fyrir mismunandi miðla, líkt og sjónvarpsstöðvar, youtube ofl.
Hópar og dagsetningar
Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita þegar næsti hópur opnar.
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →